Heiður og Hetjudáðir


Aðeins á síðari tímum hafa Navajo dulmálsfræðingar og aðrir Innfæddir Ameríkanar fengið viðurkenningu fyrir framlag sitt, sem leiddi til sigurs Bandaríkjana og vinþjóða í Heimsstyrjöldinni síðari.

codetalkersÞó að aðrar deildir Bandaríska hersins hefðu nýtt málískur og einstaklinga úr hópum Oneida, Chippewa, Sauk, Foxes og Comanches til að búa til og lesa úr dulmáli þá var það Sjóherinn (Marine Corps) sem þróuðu stærsta verkefnið. Í lok stríðsins höfðu yfir 3600 Navajo Indjánar starfað fyrir Sjóherinn og þar af 420 eingöngu með dulmál.


Eftir að upp komst hversu auðvelt Japanir áttu með að leysa dulmálskerfi Bandaríska hersins kom Philip Johnson, stríðshetja úr fyrri heimsstyrjöldinni og sonur trúboða á landsvæðu Navajo fram með tilllögu um dulmáls kerfi byggt á fornu tungmáli Navajo Indjána.

Þegar örfáir Navajo Injánar höfðu verið fengnir til starfa náðist undraverður árangur, dulmál sem hafði tekið um 30 mínútur að útbúa og leysa, tók aðeins um 20 sekúndur fyrir þessa ungu Navajo menn að leysa með Navajo kerfinu!



Enginn ljósmynd kveikir meiri þjóðerniskennd í Bandaríkjunum en fána-reisingin á Iwo Jima!

Á Flag raisingþessari frægu ljósmynd er Pima Indjáni að nafni Ira Hayes, sem fagnaði sigri sem byggður var á dulmálstækni Navajo Indjána.

Ira Hayes var fallhlífahermaður og lenti 1945 á Iwo Jima með fimmtu árasardeild Sjóliða. Eftir stríð var hann hylltur sem Bandarísk stríðshetja, en hann var sakbitinn yfir því að vera einn af þeim sem lifðu af, þetta þjakaði hann.  Árið 1955 lést hann úr alkóhólisma og vosbúð á verndarsvæði sínu.

Dauði hans var sorglegur, en þó meir sú staðreynd að þrátt fyrir hetjudáðir sínar  fyrir Bandaríkinn þá var hann ekki viðurkenndur ríkisborgari. Amerískir Indjánar voru fyrst viðurkenndir þegnar Bandaríkjana árið 1948. Það breytti engu um arfleifð hans og annara Innfæddra Ameríkana sem lifðu og börðust í samræmi við kjörorð Sjóliðanns "Semper fi" Alltaf trúr.("always faithful")


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Fjarkaland

Fjarki
Fjarki
Áhugamaður um Atvinnumennsku

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Porterhouse

Finnur Bjarki. flytjandi Eyþór Ingi - Wake Up Now

Nýjustu myndir

  • ...banner4
  • ...banner7
  • ...eportbanner

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband