Norðurlöndin skora á WHO!

 Undirskriftar síða á öllum norrænu tungumálunum og ensku.

http://isl.isci.is/English 


Mænan er ráðgáta - en saman getum við leyst hana.

Skrifum öll undir samnorræna áskorun til WHO um að láta til sín taka. Norðurlöndin skora á WHO!

Síðastliðna hálfa öld hafa orðið stórstígar framfarir á ýmsum sviðum læknavísindanna svo sem á sviði krabbameins, hjarta og augnlækninga. Á sama tíma hefur hægt miðað í leitinni að lækningu á mænuskaða. 
Undirritaðir íbúar á Íslandi  skora á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO að beita sér fyrir því að hrint verði af stokkunum alþjóðlegu átaki til leitar lækninga á mænuskaða

http://isl.isci.is

Um ISCI

Mænuskaðastofnun Íslands var stofnsett til að efla skilning meðal þjóða á því hvað mænuskaði er alvarlegt alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og að þjóðir heims þurfi að taka höndum saman svo að lækning finnist. Annar tilgangur stofnunarinnar er að safna á einn stað upplýsingum um tilraunameðferðir á mænusköðuðu fólki sem nú eru gerðar víðsvegar í veröldinni. 

Tilurð Mænuskaðastofnunar Íslands er að íslenskur hjúkrunarfræðingur, Auður Guðjónsdóttir, sem er móðir mænuskaðaðrar stúlku, hefur undanfarin ár unnið að því að íslenska þjóðin leggi sitt að mörkum svo að lækning við mænuskaða megi finnast. 

Elja Auðar hefur vakið athygli á Íslandi og víða um heim og nú leitar hún eftir stuðningi frá almenningi á öllum Norðurlöndum. 
Þróun læknavísindanna kemur öllu mannkyni til góða. 

Ýta hér til að fara á heimasíðu ISCI 

Alþjóðlegur gagnabanki um nýjungar í meðferð við mænuskaða.

Eitt að markmiðum Mænuskaðastofnunar Íslands er að byggja upp og endurnýja stöðugt upplýsingabanka sem geymir allar helstu upplýsingar um nýjungar í meðferð við mænuskaða.Gagnabankinn er á ensku, spænsku, arabísku, rússnesku og kínversku. 

Yfirmaður gagnabankans er Dr. Laurance Johnston Ph.D., MBA.

Ýta hér til að skoða gagnabankann um mænuskaða

Síða á öllum Norrænum tungumálum og Ensku 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Fjarkaland

Fjarki
Fjarki
Áhugamaður um Atvinnumennsku

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Porterhouse

Finnur Bjarki. flytjandi Eyþór Ingi - Wake Up Now

Nýjustu myndir

  • ...banner4
  • ...banner7
  • ...eportbanner

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband