Þakklæti í huga

Mænuskaðastofnun ÍslandsEins og flestir þeir sem kíkja hér við átta sig á eða vita. Þá er málefni mænuskaðaðra mér hugleikinn og málið mér tengt.

Söfnun til stuðnings Mænuskaðastofnunar Íslands í gærkvöldi á Stöð 2 var hápunkturinn á þessari söfnun þó að 904 símarnir verði áfram opnir og söfnuninni ekki lokið.

Fjöldi ólíkra skemmtikrafta og velunnara gerðu kvöldið að hinni bestu skemmtun, og svona fyrir minn smekk þá stóðu Simmi og Jói sig frábærlega sem kynnar kvöldsins.

Ég áttaði mig á því að hljómsveitin Buff er svolítið magnað fyrirbæri, sem getur brugðið sér í hvaða tónlistarstíl sem er með glæsibrag.

Fjölbreytt og góð atriði, og gríðarlegur fjöldi fólks sem á miklar þakkir skilið fyrir sitt framlag.

Að lokum vill ég þakka fyrir mig sem áhorfanda og áhugamanns um málefni Mænuskaðastofnunar Íslands.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var algjör snilld og dásamlegt að sjá hvað þetta gekk vel

 knús í krús kæri brósi

kveðja stóra sys

Berglind Elva (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 10:20

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Gott að þetta gekk vel, vonandi nær faðir þinn heilsu aftur.

Óskar Þorkelsson, 20.9.2008 kl. 10:55

3 Smámynd: Áslaug Sigurjónsdóttir

Þetta var frábær skemmtun, en sá mest lítið af henni því ég var á fullu að svara í símann.  Veit ekki hvað safnaðist mikið, en Simmi sagði eftir að útsendingu lauk að það hefði komið inn um 65 miljónir.  Veit ekkert um það, en er að bíða eftir frétt á vefnum um þetta.  En málefnið var nauðsynlegt og vona að þetta framlag til mænunnar komi henni til góða í framtíðinni og það sé komið samstilt átak til þess að vinna sameiginlega að lausn mænunnar.

Áslaug Sigurjónsdóttir, 20.9.2008 kl. 12:21

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Frábær skemmtun, þó tilefnið sé sorglegt.  Ég bið þess svo innilega að einhver lækningu sé að finna í allra nánustu framtíð.

Kærar kveðjur til ykkar allra

Ingibjörg Friðriksdóttir, 20.9.2008 kl. 16:51

5 Smámynd: Karl Tómasson

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó og til lukku með stórkostlegan dag.

Karl Tómasson, 20.9.2008 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Fjarkaland

Fjarki
Fjarki
Áhugamaður um Atvinnumennsku

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Porterhouse

Finnur Bjarki. flytjandi Eyþór Ingi - Wake Up Now

Nýjustu myndir

  • ...banner4
  • ...banner7
  • ...eportbanner

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband