Veljum Íslenskt.

GrillÞetta er ágætis frétt. Þ.e. innihaldið.

Íslenskt hráefni er það besta sem völ er á og nú betur samkeppnishæft vegna aðstæðna í verðlagi.

Þetta er einn af jákvæðu punktunum eins og staðan er og auðvitað á þetta að vera regla hjá okkur, því að íslenskar matvörur eru í flestum tilvikum meiri að gæðum.

Við þurfum að skapa störf fyrir hvert annað og vinna innan frá nú er tækifæri á að byggja upp Innlenda framleiðslu.

Ríkisstjórnin þarf að taka sig saman í andlitinu og koma Bankakerfinu í gang! Frekar dapurt að horfa upp á góð störf leggjast af fyrir seinagang þegar við þurfum á fleiri störfum að halda!


mbl.is Íslensk vara sækir á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef aldrei viljað kaupa grænmeti nema að geta treyst því að það sé íslenskt og ef ekki fæst íslenskt, þá sleppi ég því að fá mér grænmeti, því ég vil ekki styrkja erlenda skordýraeytursdreyfara. Einnig skil ég ekki hvernig fólk getur keypt útlendan bjór, sem er með rotvarnarefnum og þar að auki ekki eins góður og sá íslenski.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 17:36

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég styð átakið kaupum íslenskt.. en ég skrifa ekki undir að íslenskar vörur séu í flestum tilfellum betri að gæðum en þær erlendu..því ég veit að það er ekki rétt !

það sem er hátt að gæðum á íslandi er lambakjöt og fiskur.. kjullarnir og svínin eru slök að gæðum .  Nautakjötið okkar er ágætt en alls ekki hátt í gæðum þótt sumir matgæðingar séu að agisera fyrir gæðum íslenska beljukjötsins.. 

Grænmetið okkar er að meðalgæðum, gæti verið betra ef bændur fengju rafmagn á betra verði en í dag.. þá gætu þeir fjárfest meira í gæðum en hingað til.

Kartöflurnar okkar eru í flestum tilfellum bara óæti.

Brauðvörur á íslandi eru lélegar að gæðum enda vilja bakarar ekki nota gæða hveiti og mjöl í sínar vörur.. 

Þetta er afleiðing bónusvæðingarinnar.. allt sem ódýrast ! 

Verði ykkur að góðu.

Óskar Þorkelsson, 17.5.2009 kl. 09:48

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þeir eru að reyna allt hvað þeir geta Bjarki minn.  En það er rétt hjá þér að íslenskt hráefni er gott, allavega því sem búið er að slátra.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 22.5.2009 kl. 16:18

4 identicon

Stöndum saman. Stöndum með okkar þjóð. Þannig hugsar líka fólk víða úti í heimi.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Fjarkaland

Fjarki
Fjarki
Áhugamaður um Atvinnumennsku

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Porterhouse

Finnur Bjarki. flytjandi Eyþór Ingi - Wake Up Now

Nýjustu myndir

  • ...banner4
  • ...banner7
  • ...eportbanner

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband