Fjarki

Fjarki er Finnur Bjarki og er Tryggvason 

Ættir má rekja frá Breyðafjarðareyjum,  í suður og svo austur á bóginn í Mýrdalinn(ekki í þessari röð þó:). Stór hluti af systkynum föður ömmu minnar fluttist til Canada.

Er þó næstum örugglega, held ég, eiginlega.....undan hetjum úr Njálu! En staðfest tengsl frá Borgarnes-bjálfanum Agli Skallagrímssyni, Auði Djúpúðgu (landnámshænu) og Konungum frá Scandinavíu(Norskum, Dönskum og Sænskum),og stríðsherrum á Írlandi og Skotlandi.

Alinn upp á Suðurlandi við Suðurlandsveginn þar sem hann liggur í gegnum Hvolsvöll, en fæddur í Hafnarfirði nánar tiltekið á Sólvangi. Mér skilst að ég eigi stóra möguleika á að enda á byrjunarreit.

Bjó um tíma í Mosfellsbæ og einnig í borginni sjálfri Reykjavík.

Ég gerði tilraun til að flytjast til Vestmannaeyja á unga aldri (c.a.1,5 ára) og fullyrði að enginn.......... ENGINN! Nema ég og svo foreldrar mínir, sem ég tók með mér, hafi fengið hlýlegri móttökur í Vestmanneyjum, Gosnóttina 23. Janúar 1973.

Þrátt fyrir hlýjar móttökur þá vorum við send samdægurs með Hercules herflugvél upp á land aftur.

Ég er mikill Tónlistar unnandi og vill gjarnan bæta í þann pott, þó að mikið sé til af góðri Tónlist.

Tónlistin á þessari síðu er eftir mig og þá textahöfunda sem ég vinn með hverju sinni.
Allt hefur þetta verið unnið af áhugamennsku.

Verið velkominn á heimasíðu mína  www.porterhouse.is en þar má finna fleiri tóndæmi. 

 

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Finnur Bjarki Tryggvason

Fjarkaland

Fjarki
Fjarki
Áhugamaður um Atvinnumennsku

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Porterhouse

Finnur Bjarki. flytjandi Eyþór Ingi - Wake Up Now

Nýjustu myndir

  • ...banner4
  • ...banner7
  • ...eportbanner

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband