Svona segir í gömlu lagi sem ég hef haldið uppá.
Nú hef ég verið að vinna í úrlausn til þess að faðir minn geti notað síma með raddstýringu eingöngu!
Hann er í þannig stöðu að hendurnar gagnast honum lítið, í bili amk..
Honum var færður GSM sími Nokia 6021 með bluetooth (blátönn:) sem átti að leysa þessi mál og gefa honum aukna möguleika á að halda sambandi við vini og fjölskyldu.
Hann á því að geta gefið símanum raddbendingar og hringt í þann sem hann langar til.
Þetta hefur gengið hálf illa og Tæknideild símans í 800-7000 er ekki hæf til að hjálpa okkur með þetta og ég hef verið sendur í verslun þeirra í Ármúlanum eftir þau símtöl.
Ég bý um 100 km frá Reykjavík og hef gert mér tvær ferðir sérstaklega í þessum erindum. Í fyrsta símtali fékk ég þau svör að í verslun Símans væri fjöldinn allur af símum sem gerðu nákvæmlega þetta, stýrast með röddinni.
Ég spurði til að vera öruggur!! Alveg án þess að þrýsta á hnappa?
Já var svarið!!
Það er svo mikið úrval að þú verður bara að sjá það sjálfur!
Í fyrra skiptið sem ég fór var mér kennt að taka upp röddina og festa hana við númerið, það var að líða að lokun svo að stúlkan, þó kurteis væri var greinilega að flýta sér.
Síðan hóf ég tenór æfingar á símanum til að láta hann svara mér því að þetta var ekki svo flókið eftir allt saman!
En viti menn síminn var algjörlega heyrnarlaus og sýndi enginn viðbrögð.
Ég fór því á netið inn á Nokia.com og náði mér í upplýsingar um tegundina.
Það vantaði ekkert um hvað þessi síma er magnaður og möguleikarnir endalausir. Það vantaði bara eitt! Leiðbeiningar um hvernig ætti að láta alla þessa dýrð virka.
Þá var komið að síðari ferðinni í Ármúlann. Stúlkan fór með símann á bak við í "Sérfræðingaherbergið" og þeir fundu út að það væri takki eins og á Labb-Rabb talstöðvum sem þyrfti að þrýsta á og SVO AÐ TALA VIÐ SÍMANN SJÁLFAN !
Sem sagt niðurstaðan lá fyrir, Þeir eiga ekki til síma sem svarar með raddstýringu einni saman, með þau svör fór ég út.
Ég á erfitt með að trúa þessu miðað við tæknina í dag, en ég er búinn að gefast upp á Símanum ehf.
Það er búið ljúga að manni að þeir eigi hlutina til og svo er enginn áhugi á að leysa málið!
Það er ekki nóg að setja sjálfan Jesú í auglýsingaherferð, kraftaverkinn fylgja greinilega ekki með!
Þegar ég hringdi á Hátækni til að tala við sölumann þar sem ég kannast við, þá hringdi hann aldrei til baka þrátt fyrir þrenn skilaboð til hans, svo að ekki var þjónustan betri þar þrátt fyrir kunningsskap.
Það má þó hrósa þeim fyrir að mismuna ekki fólki vegna tengsla!
Ef einhver veit betur og getur komið mér til aðstoðar þá er það vel þegið!
Meginflokkur: Viðskipti og fjármál | Aukaflokkar: Tölvur og tækni, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði | 6.3.2008 | 13:13 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Febrúar 2007
Porterhouse
Tenglar
Tónlist og Vinir
Félagar og áhrifavaldar
- Porterhouse Mínar Tónsmíðar
- Haukur Örn Haukur Örn Dýrfjörð
- Thiago Trinsi Gítarhetja
- Shay Dillon líkt við Nora Jones, Bonnie Raitt og Lydia Pentz
- Porterhouse á Facebook Tónlistarsíða
- MySpace Tónlistar síða
- IMX Icelandic Music Export
- You Tube Ýmis myndbrot
Áhugavert
Af ýmsum toga
- Eyjafjöllin Upplýingaveita fyrir ferðamenn
- Gönguleiðir Skemmtilegar og fjölbreyttar gönguleiðir
- Áhugaverðir staðir Þórsmörk, Fossar, Hellar, Gönguleiðir
- Sögusetrið Njála og fl.
- Eldgos Eldgos í Heimaey
- John Ramsey Vesturfarar og Indiánar
- Icelandic Geographic Where is Iceland?
- Vísindavefurinn Vísindavefur HÍ
- Manchester United Nr 1.
- Chicago Bulls Bulls
- Sjómanna og Vélstjórafélag Grindvíkur Stéttarfélag
Heilsa
- Mænuskaðastofnun Íslands Mænuskaðastofnun Íslands
- Mænuskaði - myndir Myndir
Bloggvinir
- greenbrown
- kjarrip
- metal
- skari60
- fridust
- dullari
- ktomm
- agbjarn
- omarragnarsson
- jakobsmagg
- bbking
- bonham
- harpabraga
- latur
- beggath
- palmig
- asdisran
- jakobk
- jonaa
- aslaugs
- zuuber
- tommi
- hallarut
- steinunnolina
- amotisol
- elinarnar
- svanurg
- valdis-82
- sax
- gullvagninn
- nanna
- baldvinj
- arnthorhelgason
- poppoli
- apalsson
- svali
- ottarfelix
- astromix
- svavaralfred
- ofurbaldur
- gattin
- daxarinn
- ellidiv
- gudnim
- hafdismaria
- hjaltig
- nbablogg
- askja
- stinajohanns
- ubk
Athugasemdir
Mér dettur einna helst í hug Zuuber kónginn Svala. Hann hefur lýst því yfir að vera síma gúrú, endalaust að fjárfesta í tæknilegri símum. Prófaðu Kaldalóns ég hugsa að hann geti hjálpað, ef ekki sjálfur þá þekkir hann rétta manninn í málið.
Kjartan Pálmarsson, 6.3.2008 kl. 23:25
Ef þú þarfnast tæknilegrar aðstoðar...... ÞAÐ ER SÍMINN
eF
Kjartan Pálmarsson, 6.3.2008 kl. 23:26
Ef símasambandslaust er í sveitinni þinni í þrjá til fimm daga.... ÞAÐ ER SÍMINN.
Kjartan Pálmarsson, 6.3.2008 kl. 23:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.