Mænuskaðastofnun Íslands

Verð að fara nokkrum orðum um þetta frábæra starf Sem Auður Guðjónsdóttir og Hrafnhildur dóttir hennar hafa áorkað þó að nokkur tími sé frá þessari frétt.

Mikilvægi þessa starfs er ómetanlegt.

Mænusködduðum einstaklingum hefur fjölgað hrikalega undanfarin ár af ýmsum ástæðum.

En alvarlegir mænuskaðar hafa orðið í umferð og ekki síður í frístundum þar sem flestir alvarlegustu skaðarnir hafa orðið.

Faðir minn er alvarlega mænuskaddaður og því er málið mér hugleikið.

Einhvern veginn þá hugsar maður alltaf að þessi óhöpp komi bara fyrir aðra!

Mænuskaðastofnun Íslands mun hjálpa mörgum á leið sinni eftir slys hvort sem um er að ræða  einstaklinginn sem slasast eða fjölskyldu hans. Því að  vissulega vakna margar spurningar þegar sú staða er kominn upp.

Þetta þekki ég af eigin raun eftir að Pabbi slasaðist, þá fór ég á netið og leitaði að upplýsingum því að mér fannst að þrátt fyrir vilja Læknanna þá fannst mér þeir standa ráðþrota!

Sú er nánast raunin því að mænuskaði er nánast aldrei eins. Gagnlegustu upplýsingarnar fann ég á síðunni  http://www.christopherreeve.org

Þar til ég komst í kynni við starf Auðar og Hrafnhildar en það má m.a. sjá á síðunni www.sci.is

Til hamingju með árangurinn. 

 


mbl.is Mænuskaðastofnun stofnuð í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dóttir Donovans

Ekki amalegt það.

Nú á dögunum hafði samband við mig tónlistarkona dóttir Donovans sem meðal annars samdi Hurdy Gurdy man og Mellow Yellow.

Hún hefur sjálf samið ágætis lög og bauð mér samstarf í lagasmíðum.

Meira en spennandi að mér finnst!


« Fyrri síða

Fjarkaland

Fjarki
Fjarki
Áhugamaður um Atvinnumennsku

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Porterhouse

Finnur Bjarki. flytjandi Eyþór Ingi - Wake Up Now

Nýjustu myndir

  • ...banner4
  • ...banner7
  • ...eportbanner

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband