Færsluflokkur: Menning og listir
Eins og flestir þeir sem kíkja hér við átta sig á eða vita. Þá er málefni mænuskaðaðra mér hugleikinn og málið mér tengt.
Söfnun til stuðnings Mænuskaðastofnunar Íslands í gærkvöldi á Stöð 2 var hápunkturinn á þessari söfnun þó að 904 símarnir verði áfram opnir og söfnuninni ekki lokið.
Fjöldi ólíkra skemmtikrafta og velunnara gerðu kvöldið að hinni bestu skemmtun, og svona fyrir minn smekk þá stóðu Simmi og Jói sig frábærlega sem kynnar kvöldsins.
Ég áttaði mig á því að hljómsveitin Buff er svolítið magnað fyrirbæri, sem getur brugðið sér í hvaða tónlistarstíl sem er með glæsibrag.
Fjölbreytt og góð atriði, og gríðarlegur fjöldi fólks sem á miklar þakkir skilið fyrir sitt framlag.
Að lokum vill ég þakka fyrir mig sem áhorfanda og áhugamanns um málefni Mænuskaðastofnunar Íslands.
Menning og listir | 20.9.2008 | 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þetta er nú bara eitt dæmið um hvað maður er margklofinn persónuleiki.
Razer eru þéttir rokkarar frá Arizona. Að vísu er Chris Powers söngvari aðfluttur frá NY.
Chris er fanta söngvari og þekki ég það af eigin raun því hann hefur sungið inn á nokkrar upptökur fyrir mig með fínum árangri, og hinn vænsti strákur þrátt fyrir frekar skuggalegt útlit. Þeir eru það nú flestir þessir rokkarar, yfirleitt meinlausir rokkhundar sem gefa alla sína orku í músikina.
Razer er rokksveit sem má helst líkja við Iron Maiden og þess háttar rokksveitir, þéttir og kraftmiklir.Fyrsta breiðskífa þeirra er nýlega kominn út og heitir *Fall in line*. (Eitthvað sem Árni Matthisen vill örugglega að Ljósmæðurnar geri, orðalaust helst)
Ég hreifst ekkert sérstaklega af fyrstu lögunum sem ég heyrði en síðastliðið ár hafa þeir tekið stórt stökk uppá við og laga smíðarnar mun betri fyrir minn smekk og það sem ég heyrt af plötunni er fantagott.
Hér fyrir neðan er myndbandið um Super-peðið (Super Paun)
Fantagóð Rokksveit á uppleið!
Heimasíða RAZER: http://www.razerband.com/
Menning og listir | 12.9.2008 | 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég verð að játa það að í fyrstu fannst mér þetta frekar hlægilegt.
En að mönnum sem hafa verið í minnihlutahóp og sætt ofsóknum skuli detta þetta í hug og bera á borð svona fordóma!
Mér finnst fátt flottara en kona með hljóðfæri í hönd og fagna því framtakinu.
En tek fram að ég er jafnframt mikill stuðningsmaður frumbyggja um allan heim.
Didgeridoo er ekki fyrir stelpur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 3.9.2008 | 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það hafðist fyrir rest, fyrir 30.75 millj,punda.
Auk þess fór Fraizer Campell til Tottenham að láni út leiktíðina!
En ekki mátti tæpara standa að skrá félagaskiptin fyrir lok gluggans!
Menning og listir | 1.9.2008 | 23:52 (breytt kl. 23:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Thiago Trinsi býr á Ólafsfirði og er ættaður frá Brasilíu.
Hann er nú ofarlega í Alþjóðlegri keppni um flottustu "Shredder" Gítarleikara á vegum Dean Guitars.
Mig langar að hvetja þig til að taka þátt í netkosningu og smella á slóðina hér fyrir neðan og kjósa Thiago!
http://deanguitars.com/shredder
Menning og listir | 22.8.2008 | 16:03 (breytt kl. 19:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er að mörgu að huga þegar hagsmunir þjóðar eins og Kína eru annars vegar!
Fáfróður landbyggðarmaður eins og ég gerði mér ekki grein fyrir mikilvægi þess að vera ekki með skakkar tennur í söngatriði, þrátt fyrir einstaka sönghæfileika.
Ég rakst á þessa grein í vísi.is og hafði gaman að. Ekki vegna blekkinga leikja Kínverja í kringum Ólympíuleikanna, heldur var ég haldin þeirri ranghugmynd að Kínverjar væru ekki jafn hégómlegir og við vesturlandabúar.
Þegar svona skipun kemur frá Kommúnista flokknum sjálfum varðandi útlitsdýrkun þá eru þeir búnir að tapa í hnígandi valda stefnu sinni, sem að þeirra sögn snýst um jöfnuð.
En það er að sjálfsögðu barnaskapur í mér að búast við öðru þegar mannréttindi eru eins og þau eru í sama landi.
Útlitsdýrkun er og verður sjálfsagt alltaf til staðar, allstaðar.
Með of skakkar tennur fyrir Ólympíuleikana
Peiyi, til hægri, þótti ekki nógu sæt fyrir opnunarhátíðina.Litla stúlkan sem söng sig inn í hug og hjörtu heimsbyggðarinnar á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking söng alls ekki neitt, heldur hreyfði bara varirnar. Stúlkan vakti mikla athygli fyrir söng" sinn, og mætti í kjölfarið í viðtöl hjá öllum helstu fjölmiðlum landsins.
Tónlistarstjóri leikanna sá sig hinsvegar knúinn til að leiðrétta platið. Í viðtali hjá útvarpsstöð í Peking sagði hann að sú sem söng sé Yang Peiyi, sjö ára stúlka sem vann erfiða samkeppni um að fá að syngja lagið, sem heitir Óður til föðurlandsins", á leikunum.
Skömmu fyrir hátíðina tilkynnti meðlimur í kínverska kommúnistaflokknum, sem hafði fylgst með æfingu, að sigurvegarinn væri kannski með fullkomna rödd, en hentaði ekki í hlutverkið þar sem hún væri með svo skakkar tennur.
Á opnunarhátíðinni sjálfri var þessvegna íðilfögur níu ára grunnskólamær frá Peking, Lin Miaoke, fengin til að hreyfa varirnar við upptöku á rödd Peiyi.
Þetta var ekki það eina sem var fegrað fyrir opnunarhátíðina. Í gær kom í ljós að hluti flugeldasýningarinnar sem birtist sjónvarpsáhorfendum hefði verið tölvuteiknaður.
Menning og listir | 14.8.2008 | 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hugsjón og gleði.
Á láglendi suðurlands hefur tónlistarlíf verið í miklum blóma frá því að ég man eftir mér.
Fjölbreytt blóm og misfalleg en það er aukaatriði, það eru áhrifin og tilfinningin sem þau vekja!
Á bloggsíðum má þessa dagana sjá miðaldra menn og aðra hamra á Ingó og Veðurguðunum, Á móti Sól og Merzedes Club og þeirri tónlist sem þessir gleðigjafar margra ungra sem aldinna bera á borð.
Það hefur lengi loðað við Sunnlenska tónlist og okkur Sunnlendinga að við viljum skemmta okkur og þá er ekki verið að taka sig alltof alvarlega, eðli málsins samkvæmt.
Tónlist er sem betur fer tæki til að spila á margar tegundir tilfinninga, ekki bara listrænar, heldur allan skalann.
Ég vona að enginn verði sár þó að ég tali um að Labbi í Glóru, Mánar, Logar, og þeirra tíma hljómsveitir hafi átt hvað stærstan þátt í tónlistar-gleði-sköpun Sunnlendinga og sveitaböllunum, þessari meintu lágmenningu, svona til að byrja með. En nokkrar hljómsveitir úr Reykjavík og víðar hafa lengi haft gaman að því að koma á Suðurlandið og skemmta sér.
Karma,Papar og Lótus voru t.d. mikil góð ball/tónleikabönd. Ég veit að það voru ýmsar aðrar góðar dans-sveitir starfandi sem ég man ekki nöfnin á þessu augnabliki.
Á móti sól var lengi vel í skugga Skítamórals(sem var þungarokksveit) og Land & Synir. Þrautseigjan í ÁMS og spilagleðin hjá þeim heldur í þeim góðu lífi og vel þokkaðir piltar hjá flestum landsmönnum og hafa aldrei passað inní svokallaða hnakkamenningu að mínu mati.
Sólstrandargæjarnir komu inn með mikla spilagleði og húmor og á þeim tíma var mikið rót og fjölbreytt tónlistarlíf í gangi, reyndar eins og í dag. Dalton, Klaufar, Ingó og Veðurguðirnir svo dæmi sé tekið.
Ég sé að ég þyrfti sennilega að fara út í bók ef ég á að fara ýtarlegar útí þessa sögu því að svo margt kemur upp í hugann!
Sumarsmellir og gleðipopp fer samt greinilega í taugarnar á ýmsum, misvel í mig sjálfan en það er ekki nauðsyn að öll tónlist sé byggð á einhverri hugsjón, það er eins og tónlist sem kemur fólki í létt skap og maður sönglar með í sólinni sé eitthvað hræðilegt! Ég efast satt að segja að Ingó og Veðurguðirnir séu með í huga við að semja einhver meistaraverk, en þó segir mér hugur að "Bahama" sé annað "Rangur maður" fyrir okkur sunnlendinga og eigi eftir að lifa lengi í útilegum og á böllum!
En viljandi hef ég ekki nefnt nokkra gullmola sem hafa risið úr þessari meintu lágmenningu okkar Sunnlendinga
það eru söngdívurnar Hera Björk Þórhalls, Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir þær hafa allar tekið sína tónlist nokkrum skrefum lengra en gleði-poppið
Guðlaug Dröfn gaf nýlega út Jass plötu sem hún útsetti sjálf og Kristjana Stefáns er að gefa út Blues plötu með eigin lögum í bland við eldri lög og útsetningar eru í hennar höndum.
Menning og listir | 7.8.2008 | 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef áætlanir um að byggja 50.000 tonna Grænmetis verksmiðju.
Vegna hækkandi verðs á kjöti og ýmsum hrávörum þá hef ég mikla trú á að Grænmeti sé málið, (en ekki álið) til útflutnings.
50.000 tonn er mun meira en við framleiðum á Íslandi í dag af grænmeti, að ég held, ekki vegna áhugaleysis framleiðenda heldur vegna skorts á skilningi stjórnvalda á öðrum möguleikum til tekju öflunar í ríkissjóð.
Lífrænt ræktað grænmeti er selt nokkuð háu verði víða um heim.
Fyrir nokkrum dögum voru erlendir gestir í heimsókn hjá okkur, frændfólk frá Bandaríkjunum.
Þetta var Íslensk kona með börnin sín tengdabörn og barnabarn. En konan sú og dóttir hennar hafa verið hér áður. Hin voru að koma í fyrsta skipti og þau voru einfaldlega orðlaus sama hvert var farið með þau að sjá og skoða landið.
Það var mjög fyndið að sjá viðbrögðin þegar þeim var boðið að drekka ískalt og ferskt vatn beint úr læk og þurfti nokkurn sannfæringarkraft til þess að þau þorðu að drekka!!!! Ég fékk vatn og kók með klórbragði þegar ég heimsótti þau!
En aftur að grænmetinu þar sem okkar hreina vatn kemur aftur inní myndina sem og heita vatnið okkar skiptir sköpum í ræktun grænmetis og matjurta. Stutt sumar er hægt að framlengja með þessari frábæru orku sem okkur býðst á svo góðu verði af því að við erum Íslendingar og þetta er allt í bakgarðinum okkar...........ég er að telja upp á 10 áður en ég held áfram!!
OK... rólegur..... Hvaða vitleysa er þetta eiginlega?
það horfir fram á vatnsskort, matvælaskort, orkuskort og ýmiskonar annan skort en Ál. Flugvélaframleiðsla, bílaframleiðsla og fleira er að dragast saman auk þess heyri ég orð eins og Koltrefjar sem komi í stað áls í flugvélaiðnaði í framtíðinni.
Ef allir vilja vinna störf í Álverksmiðjum (ég á það eftir, vonandi ekki þó) þá er lítið við því að gera.
Mig langar að sjá Ríkið standa jafn vel að afslætti á orkuverði til annarra sem vilja skapa störf í öðrum greinum, jafnvel listgreinum. T,d, ódýrara rafmagn í hljóðfærin og magnarana þar eru margir að flytja út sýnar vörur með góðum árangri.
Ég hef líka á tilfinningunni að öll þau hjól og fellihýsi sem nú ferðast um landið fái fólk til að hugsa öðruvísi um landið. Það er ef fólk nær að slíta sig frá stressinu.
Mig reyndar dreymir að geta stundað sjálfsþurftar búskap, fara í berjamó fá mér íslenskar hænur og hinar nývinsælu Geitur miklu frekar en risa stórt grænmetis bú.
En þetta flokkast víst allt sem dagdraumar og rómantík.
En einhvernvegin líður mér betur að hugsa þannig.
Kannski smíða ég bara risagrænmetisbúið þegar öll álverin eru farinn á hausinn eða úr landi.
Menning og listir | 19.7.2008 | 13:36 (breytt kl. 13:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á MySpace síðu Rokksveitarinnar Dikta er bent á þá skemmtilegu staðreynd að Barack Obama vitnar í texta við lag þeirra drengja.
Change will not come if we wait for some other person or if we wait for some other time. We are the ones we've been waiting for.
- Barack Obama (Feb. 5 speech)
We're the ones we've been waiting for
- Dikta (A Way Out, Hunting for Happiness LP)
Þetta er að vísu ekki nýjar fréttir á síðunni þeirra en engu að síður skemmtileg ábending, hvort sem um tilviljun er.. eða ekki.
Hvort að Barack Obama sé að lesa almennt uppúr textum rokkara á fundarherferð sinn skal ósagt látið.
Dikta setti nýlega inn nýtt lag "Just getting started" inn á MySpace sem gæti túlkast sem stuðningslag við Barack Obama því að Dikta er einnig á leið í tónleikaferðalag til Bandaríkjanna á næstunni og er dagskráin sem hér segir:(Heyrst hefur að Obama verði kynnir á tónleikunum!)
Upcoming Shows | ( view all ) |
| Organ, with Kuroi | Reykjavík | ||
| The Viper Room | W. Hollywood, California | ||
| The Scene | Glendale, California | ||
| Mr. T's Bowl | Los Angeles, California | ||
| The Viper Room | W. Hollywood, California | ||
| Rehab | New York, New York | ||
| Crash Mansion - Between (A Rock and a Hard Place) Club Night | New York, New York | ||
| Iceland Airwaves | Reykjavík |
Menning og listir | 13.7.2008 | 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Valdimar Þórðarson úr Mosfellsbæ sigraði á íslandsmótinu í Motocrossi á Laugardag í Álfsnesi en hann vann einnig síðustu þol/endúrókeppni. Nr 2. í MX1 var Ragnar Ingi Stefánsson og nr 3. Einar S. Sigurðarson.
Á myndinni má sjá Valda sigra 3ja moto-ið en takið eftir á bakvið hann er Raggi. Aðeins munaði 0.16 sekúndum á þeim á marklínunni. Frábær lokasprettur hjá Ragga en dugði ekki alveg. Upplýsingar fengnar af heimasíðu VÍK www.motocross.is. En ég vona að það sé sumarfríum um að kenna að ekkert er að finna um þetta mót á motocross-linknum hjá MBL.is undir íþrótta fréttir Mig langar að benda á nýju Motocross brautina í Mosfellsbæ og hér fyrir neðan er myndband af brautinni sem Eysteinn Jóhann Dofrason gerði og sá hann að mestu um framkvæmdir á brautinni samkvæmt mínum upplýsingum. sjá einnig www.motomos.is
|
Menning og listir | 29.6.2008 | 14:25 (breytt kl. 14:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Febrúar 2007
Porterhouse
Tenglar
Tónlist og Vinir
Félagar og áhrifavaldar
- Porterhouse Mínar Tónsmíðar
- Haukur Örn Haukur Örn Dýrfjörð
- Thiago Trinsi Gítarhetja
- Shay Dillon líkt við Nora Jones, Bonnie Raitt og Lydia Pentz
- Porterhouse á Facebook Tónlistarsíða
- MySpace Tónlistar síða
- IMX Icelandic Music Export
- You Tube Ýmis myndbrot
Áhugavert
Af ýmsum toga
- Eyjafjöllin Upplýingaveita fyrir ferðamenn
- Gönguleiðir Skemmtilegar og fjölbreyttar gönguleiðir
- Áhugaverðir staðir Þórsmörk, Fossar, Hellar, Gönguleiðir
- Sögusetrið Njála og fl.
- Eldgos Eldgos í Heimaey
- John Ramsey Vesturfarar og Indiánar
- Icelandic Geographic Where is Iceland?
- Vísindavefurinn Vísindavefur HÍ
- Manchester United Nr 1.
- Chicago Bulls Bulls
- Sjómanna og Vélstjórafélag Grindvíkur Stéttarfélag
Heilsa
- Mænuskaðastofnun Íslands Mænuskaðastofnun Íslands
- Mænuskaði - myndir Myndir
Bloggvinir
- greenbrown
- kjarrip
- metal
- skari60
- fridust
- dullari
- ktomm
- agbjarn
- omarragnarsson
- jakobsmagg
- bbking
- bonham
- harpabraga
- latur
- beggath
- palmig
- asdisran
- jakobk
- jonaa
- aslaugs
- zuuber
- tommi
- hallarut
- steinunnolina
- amotisol
- elinarnar
- svanurg
- valdis-82
- sax
- gullvagninn
- nanna
- baldvinj
- arnthorhelgason
- poppoli
- apalsson
- svali
- ottarfelix
- astromix
- svavaralfred
- ofurbaldur
- gattin
- daxarinn
- ellidiv
- gudnim
- hafdismaria
- hjaltig
- nbablogg
- askja
- stinajohanns
- ubk